28 (22-26). fundur
28 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
10.09.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
01
Veitumál í Garðabæ
Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu veitumála í Garðabæ. Umhverfisnefnd þakkar greinagóða kynningu á veitumálum í Garðabæ.
Fylgiskjöl
03
Umhverfishópar 2025
Skýrsla yfirflokkstjóra umhverfishópa sem starfræktir eru yfir sumarið kynnt. Umhverfisnefnd fagnar miklu og öflugu starfi sem unnið var í umhverfishópum í sumar og góðri samantekt um störf umhverfishópa.
04
Evrópsk samgönguvika 2025
Evrópsk samgönguvika stendur yfir dagana 16.-22. september. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Þema samgönguviku í ár er Samgöngur fyrir öll.
05
Tillaga um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ
Umhverfisnefnd ræddi tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ. Nefndin leggur til hugmyndir að forgangsröðun hringtorga sem til greina koma fyrir nafngiftir en leggur jafnframt áherslu á að frekari greining á útfærslu og kostnaði fari fram við verkefnið.