Beint í efni

Tillaga um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ

Málsnúmer 2206189

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

69. fundur

Rætt um útfærslu á merkingum í Garðabæ.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

67. fundur

Tillaga um nafngiftir rædd og verður unnin áfram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

28 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd ræddi tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ. Nefndin leggur til hugmyndir að forgangsröðun hringtorga sem til greina koma fyrir nafngiftir en leggur jafnframt áherslu á að frekari greining á útfærslu og kostnaði fari fram við verkefnið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

46. fundur

Málinu vísað til umhverfissviðs til frekari útfærslu sem sendir nefndinni þær þegar liggur fyrir hvort breytingar muni eiga sér stað á helstu hringtorgum bæjarins á næstunni.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

43. fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri-innlegg

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar kynnti hringtorg í Garðabæ, fjölda og stærð. Ræddar voru hugmyndir menningar- og safnanefndar um fegrun og nafngiftir torganna.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

42. fundur

Tillaga um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ rædd og menningarfulltrúa falið að kanna fjölda hringtorga og stærð þeirra fyrir næsta fund nefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

9. (905). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela menningar- og safnanefnd og umhverfisnefnd að vinna tillögur um hvernig staðið verði að nafngiftum og fegrun hringtorga bæjarins. Jafnframt skulu nefndirnar vinna með tækni- og umhverfissviði að fegrun hringtorga bæjarins.“

Greinargerð:
Hringtorg bæjarins setja mikinn svip á bæinn og eiga að vera prýði fyrir bæjarbúa og vegfarendur. Líta má til þess að hringtorgin hafi að einhverju leyti samræmda ásýnd með sumarblómum og öðrum gróðri sem hentar og skyggir ekki á umferð. Útilistaverk gætu mögulega verið á stærri hringtorgum.
Samkeppni meðal bæjarbúa varðandi nöfn á a.m.k. einhver hringtorg bæjarins er leið til að tengja bæjarbúa með lýðræðislegum hætti við verkefnið og nærsamfélag sitt. Menningar- og safnanefnd gæti einnig horft til sögu Garðabæjar, s.s. til sögu Bessastaða og forsetaembættisins, sem og nágrenni hvers torgs við nafngiftirnar.
Guðfinnur Sigurvinsson, formaður menningar- og safnanefndar.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.