Beint í efni

42. fundur

14.09.2022
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

42. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

14.09.2022

Kl. 16:30 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
  • Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2206189

01

Tillaga um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ

Tillaga um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ rædd og menningarfulltrúa falið að kanna fjölda hringtorga og stærð þeirra fyrir næsta fund nefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209296

02

Fjölbreytt menningarstarf í Garðabæ

Menningarfulltrúi kynnti fjölbreytt menningarstarf undanfarinna tveggja ára.Viðburðir fyrir skólabörn, fjölskyldur og fullorðna auk rafrænna þátta kynnt fyrir nýrri menningar- og safnanefnd og helstu áherslur menningarstarfs í Garðabæ ræddar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209193

03

Menningardagskrá fyrir skólahópa vetur 22/23

Dagskrá fyrir skólahópa skólaárið 22/23 kynnt en dagskrá fer fram í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Tónlistarskóla Garðabæjar og á sýningunni Aftur til Hofsstaða og í Minjagarðinum að Hofsstöðum þegar nýjar sýningar verða opnaðar haustið 2022. Vetrardagskrá fyrir skólahópa lýkur með Barnamenningarhátíð í Garðabæ í apríl 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209194

04

Menningardagskrá haust 22

Haustdagskrá Menningar í Garðabæ kynnt skv. bæklingi sem kom út í lok ágúst.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209197

05

Styrkur til tónleikahalds

Farið yfir beiðni um styrk vegna útgáfutónleika Ómars Guðjónssonar og samþykkt að bjóða Garðbæingum og gestum þeirra ókeypis tónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar sunnudagskvöldið 9. október.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2209298

06

Starfsáætlun menningar- og safnanefndar 22/23

Rætt um starfsáætlun nefndar sem verður endanlega yfirfarin á næsta fundi.