Beint í efni

Menningardagskrá fyrir skólahópa vorönn 23

Málsnúmer 2209193

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

46. fundur

Fjölbreytt menningardagskrá fyrir skólahópa á vorönn kynnt. 1. og 2. bekkur fær boð á tónleika í byrjun mars í Tónlistarskóla Garðabæjar sem List fyrir alla greiðir. 4. bekkur vinnur í smiðjum á Hönnunarsafninu að gerð á heimilum í smækkaðri mynd sem sýnd verða á Pallinum á Barnamenningarhátíð og Hönnunarmars. 5. bekkur heimsækir sýninguna Aftur til Hofsstaða og vinnur verkefni með þjóðfræðingi með það að markmiði að efla skilning nemenda á landnáminu. 6. bekkur lærir að nota bókasafn í gegnum ratleik. Dagana 17. - 22 apríl fer fram Barnamenningarhátið og öflug dagskrá fyrir 1., 3., 5. og 7. bekk auk unglingastigs. Í maí verður tekið á móti 1. bekkingum til að kynna sumarlestur Bókasafns Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

42. fundur

Dagskrá fyrir skólahópa skólaárið 22/23 kynnt en dagskrá fer fram í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Tónlistarskóla Garðabæjar og á sýningunni Aftur til Hofsstaða og í Minjagarðinum að Hofsstöðum þegar nýjar sýningar verða opnaðar haustið 2022. Vetrardagskrá fyrir skólahópa lýkur með Barnamenningarhátíð í Garðabæ í apríl 2023.

Fylgiskjöl