Beint í efni

Mengunarmælingar 2025

Málsnúmer 2502419

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

30 (22-26). fundur

Mengunarmælingar lagðar fram og ræddar. Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti stöðu fráveitumála í Garðabæ og fór yfir stöðu framkvæmda á vegum bæjarins tengda því. Framtíðaruppbygging fráveitumála á Álftanesi rædd og kynnt sem byggir að stórum hluta af því að afleggja rotþrær og tengja við lokað fráveitukerfi bæjarins. Fyrir liggur viljayfirlýsing milli Veitna og Garðabæjar að koma fráveitu inn í Skerjafjarðarveitu með tilkomu dælustöðvar á Norðurnesi. Hafin hefur verið innleiðing á breyttu fyrirkomulagi umsóknar um heimaæðar þar sem uppbyggingaraðila er skylt að sýna fram á rétta tengingu fráveitu og regnvatnslagna. Þetta er gert til að tryggja að rangtengingar verði ekki í nýjum hverfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

28 (22-26). fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

26 (22-26). fundur

Lagt fram. Umhverfissvið er með í vinnslu nýja verklagsreglu varðandi tengingar fráveitu við nýbyggingar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

25 (22-26). fundur

Lagt fram.