Beint í efni

30 (22-26). fundur

12.11.2025
Umhverfisnefnd Garðabæjar

30 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

12.11.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
  • Eyþór Eðvarðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Linda Björk Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2502419

01

Mengunarmælingar 2025

Mengunarmælingar lagðar fram og ræddar. Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti stöðu fráveitumála í Garðabæ og fór yfir stöðu framkvæmda á vegum bæjarins tengda því. Framtíðaruppbygging fráveitumála á Álftanesi rædd og kynnt sem byggir að stórum hluta af því að afleggja rotþrær og tengja við lokað fráveitukerfi bæjarins. Fyrir liggur viljayfirlýsing milli Veitna og Garðabæjar að koma fráveitu inn í Skerjafjarðarveitu með tilkomu dælustöðvar á Norðurnesi. Hafin hefur verið innleiðing á breyttu fyrirkomulagi umsóknar um heimaæðar þar sem uppbyggingaraðila er skylt að sýna fram á rétta tengingu fráveitu og regnvatnslagna. Þetta er gert til að tryggja að rangtengingar verði ekki í nýjum hverfum.

Málsnúmer 2510431

02

Útikennsla í friðlandi Vífilsstaðavatns 2025

Lagt fram minnisblað Bjarna Jónssonar, fiskifræðings varðandi árlegrar útikennslu í friðlandi Vífilsstaðavatns. Umhverfisnefnd Garðabæjar hefur síðan árið 1999 boðið nemendum í 6. bekk grunnskóla bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns. Kennslan við vatnið er liður í náttúrufræðikennslu skólanna og hefur Bjarni Jónsson séð um útikennsluna öll árin, honum til aðstoðar er starfsfólk garðyrkjudeildar.

Málsnúmer 1812078

03

Rannsókn á lífríki Vífilsstaðavatns

Umhverfisnefnd telur mjög mikilvægt að gerð verði rannsókn á lífríki Vífilsstaðarvatns. Umhverfisnefnd Garðabæjar lét rannsaka lífríki Vífilsstaðavatns sumarið 1998 og fiskistofna vatnsins haustið 1999. Með nýjum rannsóknarniðurstöðum er hægt að rýna núverandi stöðu vatnsins og meta þörfina á úrbótum. Umhverfisnefnd samþykkir að gerð verði rannsókn á lífríki og fiskistofnum í Vífilsstaðavatni og óskað verði eftir rannsóknarleyfi til Náttúruverndarstofnunar.