Beint í efni

Rannsókn á lífríki Vífilsstaðavatns

Málsnúmer 1812078

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

35 (22-26). fundur

Máli frestað.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

30 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd telur mjög mikilvægt að gerð verði rannsókn á lífríki Vífilsstaðarvatns. Umhverfisnefnd Garðabæjar lét rannsaka lífríki Vífilsstaðavatns sumarið 1998 og fiskistofna vatnsins haustið 1999. Með nýjum rannsóknarniðurstöðum er hægt að rýna núverandi stöðu vatnsins og meta þörfina á úrbótum. Umhverfisnefnd samþykkir að gerð verði rannsókn á lífríki og fiskistofnum í Vífilsstaðavatni og óskað verði eftir rannsóknarleyfi til Náttúruverndarstofnunar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

6 (22-26). fundur

Umhverfisnefnd telur mjög mikilvægt að gerð verði rannsókn á lífríki Urriðavatns og Vífilsstaðarvatns.
Umhverfisnefnd Garðabæjar lét rannsaka lífríki Vífilsstaðavatns sumarið 1998 og fiskistofna vatnsins haustið 1999.
Markmiðið með nýjum lífríkjarannsóknum er að meta náttúrulegt og núverandi ástand lífríkjanna í Vífilsstaðavatni og Urriðavatni. Nýjar rannsóknir geta sýnt hvort lífríki Urriðavatns hafi fengið að þróast á eigin forsendum eftir að byggðin í Urriðaholti og Kauptúni reis, og hvort lífríki Vífilsstaðavatns hafi breyst síðan rannsóknirnar voru gerðar 1998 og 1999. Með nýjum rannsóknarniðurstöðum er hægt að rýna núverandi stöðu vatnanna og meta þörfina á úrbótum.
Vöktun á völdum þáttum í vistkerfi Vífilsstaðavatns og Urriðavatns er óaðskiljanlegur hluti af verndun vatnanna til framtíðar. Æskilegt er að fylgjast reglulega með lykilþáttum eins og rennsli, vatnshita, efna- og gerlainnihaldi, vatnagróðri, smádýralífi og fiskistofnum. Í því sambandi má nefna að fiskistofnar beggja vatna hafa sérstöðu í samanburði við aðra stofna sem hafa verið rannsakaðir hérlendis. Í báðum vötnunum er mikið vistfræðilegt samspil á milli urriða og hornsíla, því munu breytingar sem hafa áhrif á aðra tegundina óhjákvæmilega hafa áhrif á hina, og jafnframt samspilið við önnur vistkerfi í vötnunum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

41. fundur

Linda greindi frá því að verið er að óska eftir sérfræðingi hjá Náttúrufræðistofnun til að sjá um rannsókn á Vífilsstaðarvatni og Urriðavatni.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Linda björk Jóhannsdóttir kynnir fyrri rannsóknir á lífríki Vífilstðavatns og nefndin samþykkir að farið verði í sambærilegar rannsóknir.