Vorhreinsun lóða 2025
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
26 (22-26). fundur
Vorhreinsun lóða í Garðabæ fór fram dagana 9.-22 maí með sama sniði og í fyrra þegar nýrri nálgun á hreinsun garðaúrgangs var kynnt. Ríflega 30 gámum var komið fyrir í bænum til að taka á móti garðaúrgangi sem íbúar komu sjálfir í gámana. Fjöldi gáma endurspeglar þann mikla dugnað sem Garðbæingar hafa sýnt í vorhreinsun sinni.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
25 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd leggur til að vorhreinsun lóða verði áfram með breyttu fyrirkomulagi. Þar sem gámum verður komið fyrir í bænum til að taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana.
Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður með sama sniði í ár og í fyrra, þar sem gámum verður komið fyrir á ríflega 30 stöðum í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana. Vorhreinsun lóða fer fram 9. - 22. maí.