Víkurgata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
03
28. (2176). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tannlæknastofu EG ehf., kt. 630399-2809, leyfi til að reisa tæknirými neðanjarðar ásamt stoðveggjum og útitröppum að Víkurgötu 15.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
9. fundur
Lögð fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum einbýlishússins Víkurgötu 15, ásamt umsögn skipulagshöfundar. Óskað er eftir heimild til að koma fyrir tæknirými/útigeymslu ásamt óuppfylltu rými neðanjarðar undir
bílastæðum. Um er að ræða rými utan byggingarreits. Tæknirýmið/ geymslan er ekki sýnilegt frá götu og hún er ekki nær lóðarmörkum að Víkurgötu 13 en 1 metri.
Fordæmi eru fyrir sambærilegri útfærslu innan deiliskipulagssvæðis Urriðaholts vesturhluta.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað tæknirými og geymslu varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.