6. fundur
6. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
01.07.2020
Kl. 16:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Tekið er fyrir mál nr. 1911304 - stafræn þjónusta og framþróun. Sunna Sigurðardóttir, verkefnisstjóri, situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Sunna gerir grein fyrir vinnu starfshóps um stafræna þjónustu og framþróun hjá Garðabæ og þeim verkefnum sem komu til umfjöllunar hjá starfshópnum. Í niðurstöðum starfshópsins er lagt til að valin verði fjögur verkefni sem eru stafrænt Garðakort, umhverfisgátt, þjónustugátt fyrir eldri borgara og snjöll afgreiðsla leikskólaumsókna.
Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með vinnuna og val verkefna.
02
Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Forvarnarstefna Garðabæjar 2020
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 - endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar.
Drög að endurskoðaðri forvarnarstefnu eru send frá ÍTG á nefndir og ráð bæjarins til kynningar. Í drögum að nýrri forvarnarstefnu er lögð áhersla á allt samfélagið og stefnan er tengd heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Fjölskyldusviði er falið að fylgja eftir þeim atriðum sem tengjast málaflokkum sviðsins og hafa samráð við ábyrgðaraðila stefnunnar. Fjölskylduráð óskar eftir nánari kynningu frá íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa Garðabæjar.
Fylgiskjöl
03
Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu
Greinargerð vegna úttektar á stuðningsfjölskyldu lögð fyrir fjölskylduráð Garðabæjar.
Tekið er fyrir mál nr. 2001188 beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu.
Nánar er bókað um málíð í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Berglind Sveinbjörnsdóttir situr fundinn undir þessum lið.
04
2202014060 - Umsókn um fjárhagsaðstoð
Lagt er fyrir mál nr. 2006501 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2006501 umsókn um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
2304575579 - Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr. 2001432, umsókn um niðurgreiðslu á kostnaðarhlut umsækjanda vegna nauðsynlegrar læknisfræðilegrar endurhæfingar.
Tekið er fyrir mál nr. 2001432 umsókn um fjárhagsaðstoð til niðurgreiðslu á læknisfræðilegri endurhæfingu.
Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
06
Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Tekið er fyrir mál nr. 2005438 drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum og stigagjöf.
Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir athugasemdir.
Samþykkt er að senda drögin til yfirlestrar lögmanns bæjarins og leggja málið aftur fyrir fjölskylduráð í ágúst.