7. fundur
7. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
19.08.2020
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
01
Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar
Á fundi sínum 1. júlí 2020 óskaði fjölskylduráð eftir því að íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi kynnti fyrir ráðinu drög að forvarnarstefnu Garðabæjar með áherslu á þau atriði er snerta sérstaklega málaflokka sviðsins.
Tekið er fyrir mál nr. 1908321 Endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi kemur á fund ráðsins og kynnir drög að endurnýjaðri forvarnarstefnu Garðabæjar. Forvarnarfulltrúi hefur gert breytingar á stefnunni til samræmis við fyrri athugasemdir fjölskylduráðs og starfsmanna fjölskyldusviðs. Drögin rædd og ábendingum og athugasemdum fjölskylduráðs komið til skila. Fjölskylduráð lýsir ánægju sinni með vinnuna.
02
Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.
Tekið er fyrir mál nr. 2005438 endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar. Fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði ásamt stigagjöf rædd. Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að reglum og stigagjöf og vísar drögunum til afgreiðslu bæjarráðs Garðabæjar.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð námsstyrkur
Lagt er fyrir mál nr. 2007374, umsókn um námsstyrk.
Tekið er fyrir mál nr. 200734, umsókn um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar.