Beint í efni

Skipulag - Þorrasalir 37, Kópavogur. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer 2007767

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi. (Mál nr. 2007767)

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi. (Mál nr. 2007767)

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (1942). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lög fram tillaga að breytingu deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi. Breytingin nær til lóðarinnar Þorrasalir 37 og gert ráð fyrir því að lóðin stækki til vestur sem nemur opnu svæði sem er vestan við lóðina að bæjarmörkum að Garðabæ. Byggingarreitur lóðarinna stækkar einnig.
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við að opið grænt svæði sé skert og minnir á að lítið er um opin svæði í deiliskiplagi Hnoðraholts í Kópavogi. Í greinargerð deiliskipulags segir um opin svæði: "Deiliskipulagssvæðið liggur að stóru opnu svæði til austurs og suðurs. Inni í hverfinu verða græn svæði sem nýtast fyrir gönguleiðir, leiksvæði og trjárækt. Opin svæði til leikja og útiveru innan deiliskipulagsins þ.e. grenndarvellir, trjáræktarsvæði,ásamt leikskóla tengjast með stígum."
Skiplagsnefnd bendir á að þau opnu grænu svæði sem deiliskipulagið getur um eru Garðabæjarmegin sveitarfélagsmarka og þessu hefur verið gætt í tilögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nú er í auglýsingu að græn svæði séu milli núverandi byggðar í Kópavogi og hinnar nýju byggðar Garðabæjarmegin. Því er eðlilegt að Kópavogur sjái til þess að þau fáu svæði sem eru opin Kópavogsmegin séu óskert.

Bæjarráð Garðabæjar

05

31. (1939). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.