Almenningssamgöngur í Urriðaholti
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (871). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um almenningssamgöngur í Urriðaholti Um er að ræða tilraunaverkefni september 2020 - september 2021. (Mál nr. 2008447)
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
12. (871). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um almenningssamgöngur í Urriðaholti Um er að ræða tilraunaverkefni september 2020 - september 2021. (Mál nr. 2008447)
Bæjarráð Garðabæjar
03
34. (1942). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Virkir dagar:
18-manna vagn í áætlun:
Á hálftíma fresti á annatíma frá kl. 7:00-9:00 og frá kl. 14:00-18:00
Pöntunarþjónusta:
Á klukkutíma fresti frá kl. 9:30-13:30 og frá kl. 18:30 -23:30
Helgar:
Pöntunarþjónusta:
Laugardagar frá kl. 8:30 - 23:30 á klukkutíma fresti
Sunnudagar frá kl. 9:30 - 23:30 á klukkutíma fresti
Um er að ræða tilraunaverkefni september 2020 - september 2021.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 kr. 13.000.000.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða tillögu.
Bæjarráð Garðabæjar
04
33. (1941). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Strætó bs. varðandi tillögur um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Lagt fram minnisblað Strætó bs. varðandi valmöguleika á þjónustu fyrir Urriðaholt.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að móta endanlega tillögu að bættri þjónustu almenningssamgangna við Urriðaholt ásamt gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna viðbótarkostnaðar.