33. (1941). fundur
33. (1941). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
25.08.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19, hættustig almannavarna.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir áherslum almannavarna varðandi ráðstafanir neyðarstjórna og sveitarfélaga og sagði frá því að neyðarstjórn Garðabæjar hafi komið saman til fundar í gær.
Bæjarstjóri sagði frá því að fyrirhugaður er fjarfundur með öllum forstöðumönnum til að fara nánar yfir helstu reglur og áherslur í starfseminni og aðgerðir til að tryggja sóttvarnir.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsvið gerði grein fyrir skólabyrjun í grunnskólum og tilhögun á aðlögun nýrra barna á leikskólunum. Fram kom að fyrirhugaður er sameiginlegur fundur fræðslustjóra með almannavörnum til að samræma reglur og áherslu í starfi skólanna á höfuðborgarsvæðinu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2007238
02
Maríugata 14 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 14.
Málsnúmer 2007241
03
Maríugata 16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 16.
Málsnúmer 2007240
04
Maríugata 18 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 18.
Málsnúmer 1801358
05
Tilkynning samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytis um að frumkvæðisathugun á samstarfssamningum sveitarfélaga sé lokið, dags. 20.08.20.
Málsnúmer 2008406
07
Tilkynning frá Gæða og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar um ný gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk, dags. 20.08.20.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003111
08
Tillaga um breytingu á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð samþykkir tillögur um breytingar á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum.
Málsnúmer 2008391
09
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tillögu um stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21.08.20.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Garðabær samþykkir að taka þátt í að stofna opinbert hlutafélag, Betri samgöngur ohf., um uppbyggingu samgönguinnviða með aðild ríkissjóðs, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar, sbr. heimild í 1. gr. laga nr. 81/2020 um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, og leggi félaginu til hlutafé við stofnun þess með áskrift hluta að nafnvirði kr. 72.704,- í samræmi við fyrirhugaðan eignarhlut Garðabæjar í félaginu eða 1,818%.
Greiðsla hlutafjár verður með þeim hætti að Garðabær innir af hendi kr. 72.704,- með eingreiðslu í reiðufé til félagsins samhliða stofnun þess.
Í samræmi við framangreint samþykkir Garðabær stofnsamning og hluthafasamkomulag fyrir Betri samgöngur ohf., sbr. hjálögð skjöl, og felur bæjarstjóra að undirrita þessi skjöl fyrir hönd Garðabæjar.“
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2008447
10
Tillögur Strætó bs. um almenningssamgöngur í Urriðaholti
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Strætó bs. varðandi tillögur um almenningssamgöngur í Urriðaholti.
Lagt fram minnisblað Strætó bs. varðandi valmöguleika á þjónustu fyrir Urriðaholt.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að móta endanlega tillögu að bættri þjónustu almenningssamgangna við Urriðaholt ásamt gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna viðbótarkostnaðar.