Ný gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk.
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
3. fundur
Tekið fyrir mál nr. 1911375 stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar. Stofnunin tók til starfa í maí 2018 og hefur stefnan verið í mótun frá hausti 2018. Samráðshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að stöðlum sem þessum verði fylgt eftir og komist til raunverulegra framkvæmda. Í stefnunni koma fram gildi stofnunarinnar, hlutverk, sýn og verkefni. Lagt fram og rætt.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
8. fundur
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar gaf í ágúst 2020 út fyrstu íslensku gæðaviðmiðin fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk á Íslandi.
Viðmiðin taka til þjónustu við fatlað fólk skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Gæðaviðmiðin voru unnin í náinni samvinnu við helstu hagsmunaaðila í málaflokknum. Þau taka bæði til réttinda fólks og þess sem þjónustan á að skila. Þetta eru því útkomumiðuð gæðaviðmið.
Tekið fyrir mál nr. 2008406 - Gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk.
Gæðaviðmiðin eru ekki fyrirmæli eða tilskipanir á borð við laga- eða reglugerðarákvæði. Þau eru hugsuð til leiðsagnar fyrir sveitarfélög og aðra þá sem veita fötluðu fólki þjónustu. Þeim er ætlað að gagnast eftirlitsaðilum, þjónustuveitendum og notendum þjónustunnar bæði við innra og ytra mat.
Sameiginlegt verkefni hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, er innra eftirlit með starfsstöðvum á svæðinu. Ráðinn hefur verið verktaki til starfsins og er kostnaður greiddur af Jöfnunarsjóði.
Í þeirri vinnu hafa verið skilgreindir ákveðnir gæðavísar sem fjölskylduráð telur mikilvægt að samræmdir séu við gæðaviðmið GEF.
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1941). fundur
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.