8. fundur
8. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.09.2020
Kl. 16:00 - 17:40
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts
Tekið er fyrir mál nr. 2005435 búsetukjarni Brekkuás 2.
Skipulagsnefnd vísaði málinu til fjölskylduráðs til kynningar. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og Pála Marie Einarsdóttir sitja fundinn undir þessum lið og kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis (Hraunsholt vestra) vegna fyrirhugaðs búsetukjarna í Brekkuási 2. Búsetukjarninn gerir ráð fyrir 6 íbúðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk. Auk þess eru lagðar fram innsendar ábendingar sem bárust á forkynningarstigi.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu og mögulegum staðsetningum fyrir fleiri búsetukjarna.
Fjölskylduráð leggur áherslu á að unnið verði markvisst að undirbúningi fleiri búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
02
Reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk
Tekið er fyrir mál nr. 190412 reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir fundinum liggja drög að reglum sem eru samhljóða fyrir sveitarfélögin, Garðabæ, Kópavog, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.
Reglurnar öðlast gildi fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig þegar bæjarstjórn hefur samþykkt þær.
Fjölskylduráð fjallar um drögin og samþykkir að senda þau til kynningar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og til afgreiðslu bæjarráðs.
03
Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu
Tekið er fyrir mál nr. 2007267 beiðni um úttekt í tengslum við umsókn um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda.
Berglind Sveinbjörnsdóttir, ráðgjafi í barnavernd situr fundinn undir þessum lið. Greinargerð barnaverndar Garðabæjar vegna úttektar á stuðningsfjölskyldu lögð fyrir fjölskylduráð.
Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að mæla með útgáfu leyfis. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
04
Bæklingur 2.0 um áhrif áfengis á Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Tekið er fyrir mál nr. 2009055 bæklingur bindindissamtakanna IOGT um áhrif áfengis á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í fjölskylduráði. Lagt fram og rætt.
05
Ný gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk.
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar gaf í ágúst 2020 út fyrstu íslensku gæðaviðmiðin fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk á Íslandi.
Viðmiðin taka til þjónustu við fatlað fólk skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Gæðaviðmiðin voru unnin í náinni samvinnu við helstu hagsmunaaðila í málaflokknum. Þau taka bæði til réttinda fólks og þess sem þjónustan á að skila. Þetta eru því útkomumiðuð gæðaviðmið.
Tekið fyrir mál nr. 2008406 - Gæðaviðmið fyrir félagslega þjónustu við fatlað fólk.
Gæðaviðmiðin eru ekki fyrirmæli eða tilskipanir á borð við laga- eða reglugerðarákvæði. Þau eru hugsuð til leiðsagnar fyrir sveitarfélög og aðra þá sem veita fötluðu fólki þjónustu. Þeim er ætlað að gagnast eftirlitsaðilum, þjónustuveitendum og notendum þjónustunnar bæði við innra og ytra mat.
Sameiginlegt verkefni hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, er innra eftirlit með starfsstöðvum á svæðinu. Ráðinn hefur verið verktaki til starfsins og er kostnaður greiddur af Jöfnunarsjóði.
Í þeirri vinnu hafa verið skilgreindir ákveðnir gæðavísar sem fjölskylduráð telur mikilvægt að samræmdir séu við gæðaviðmið GEF.