Beint í efni

Stofnun opinbers hlutafélags - Betri samgöngur ohf.

Málsnúmer 2008391

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (871). fundur

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir tillögu um stofnun opinbers hlutafélags með aðild ríkissjóðs, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar og Garðabæjar sem hefur það hlutverk að standa að uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Gunnar lýsti nánar helstu verkefnum félagsins.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka þátt í að stofna opinbert hlutafélag, Betri samgöngur ohf., um uppbyggingu samgönguinnviða með aðild ríkissjóðs, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar, sbr. heimild í 1. gr. laga nr. 81/2020 um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, og leggi félaginu til hlutafé við stofnun þess með áskrift hluta að nafnvirði kr. 72.704,- í samræmi við fyrirhugaðan eignarhlut Garðabæjar í félaginu eða 1,818%.
Greiðsla hlutafjár verður með þeim hætti að Garðabær innir af hendi kr. 72.704,- með eingreiðslu í reiðufé til félagsins samhliða stofnun þess.
Í samræmi við framangreint samþykkir bæjarstjórn Garðabæjar stofnsamning og hluthafasamkomulag fyrir Betri samgöngur ohf., sbr. hjálögð skjöl sem liggja fyrir á fundinum, og felur bæjarstjóra að undirrita þessi skjöl fyrir hönd Garðabæjar.“

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

33. (1941). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.

„Garðabær samþykkir að taka þátt í að stofna opinbert hlutafélag, Betri samgöngur ohf., um uppbyggingu samgönguinnviða með aðild ríkissjóðs, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogsbæjar, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar, sbr. heimild í 1. gr. laga nr. 81/2020 um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu, og leggi félaginu til hlutafé við stofnun þess með áskrift hluta að nafnvirði kr. 72.704,- í samræmi við fyrirhugaðan eignarhlut Garðabæjar í félaginu eða 1,818%.
Greiðsla hlutafjár verður með þeim hætti að Garðabær innir af hendi kr. 72.704,- með eingreiðslu í reiðufé til félagsins samhliða stofnun þess.
Í samræmi við framangreint samþykkir Garðabær stofnsamning og hluthafasamkomulag fyrir Betri samgöngur ohf., sbr. hjálögð skjöl, og felur bæjarstjóra að undirrita þessi skjöl fyrir hönd Garðabæjar.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.