Beint í efni

Staða ungmennaráða í sveitarfélögum

Málsnúmer 2002322

Ferill máls

Ungmennaráð Garðabæjar

01

1. fundur


1. Rætt var um hvaða væntingar meðlimir ungmennaráðs hafa til komandi starfsárs og hvað þau vilja áorka.
Það sem kom m.a. fram;
- Taka þátt í stóru verkefni, eins og þau gerðu í forvarnar-vikunni árið 2020
- Samstarf við önnur ungmennaráð
- Gera viðburð á vegum ungmennaráðs
- Fá að vinna í uppbyggingu á ungmennahúsi Garðabæjar, koma með sínar hugmyndir varðandi uppsetningu og starfsemi ungmennahússins.

2. Annað sem kom fram
- Kominn tími til að kjósa nýja formenn.
- Tekið sé meira tillit til ungmennaráðsins.
- Þeim sé gefið aðeins meira credit fyrir stór verkefni.
- Lagt til að sé greitt fyrir þátttöku.
- Halda kynningu fyrir bæjarráð varðandi starfsemi ungmennaráðsins.

Ekki var fleira tekið fyrir

Fundi slitið 21:00.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

22. fundur

Umfjöllun um skipun fulltrúa í Ungmennaráð sveitarfélaga.

ÍTG fjallaði um skipun fulltrúa í Ungmennaráð sveitarfélaga og reglur um það í ljósi bréfs Umboðsmanns barna. Samband íslenskra sveitarfélaga er með málið í skoðun og mun ÍTG fylgjast með þróun mála. Komið er að endurnýjun í Ungmennaráð Garðabæjar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (1942). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs.

Fylgiskjöl