Beint í efni

Ljósakur 6-breytingar á geymslum

Málsnúmer 1810120

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6. (Mál nr. 1810120)

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6. (Mál nr. 1810120)

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (1942). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókna um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Lögð fram ósk eigenda einnar íbúðar í fjölbýlishúsinum um að skipulagsnefnd endurskoði svar sitt við erindi sem barst frá eigendum árið 2018. Óskað er eftir frekari rökstuðningi.
Svar skipulagsnefndar var eftirfarandi: "Samkvæmt tillögu verður húsið 3 hæða í stað tveggja hæða og kallar á deiliskipulagsbreytingu. Þeirri deiliskipulagsbreytingu er hafnað þar sem að breytingin hefur áhrif á hús við Hjálmakur en eigendur þeirra hafa áður lýst sig andsnúna þeirri útfærslu."
Skipulagsnefnd vísar til fyrra svars og minnir á að á sínum tíma hafi verið skoðað að heimila íverurými í kjallara hússins en niðurstaðan hafi verið sú að það hefði neikvæð áhrif fyrir aðliggjandi hús við Hjálmakur. Húbyggjendur hafið síðan farið þá leið að ganga þannig frá lóð hússins að útveggir kjallara er ofanjarðar að neðanverðu og því skiljanlegt að eigendum þyki eðlilegt að breyta notkun kjallarans. Það breytir ekki því að eigendur húsa við Hjálmakur eiga að geta vænst þess að deiliskipulag haldi. Við Ljósakur 2 háttar þannig til að engin hús hús standa neðan við og grenndaráhrif því óveruleg.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

17. (839). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6 enda liggur fyrir að breytingin hefur grendaráhrif og fyrir liggur neikvæð afstaða íbúa við Hjálmakur.

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

06

43. (1858). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Ljósakur 6 enda liggur fyrir að breytingin hefur grendaráhrif og fyrir liggur neikvæð afstaða íbúa við Hjálmakur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu á fjölbýlishúsinu að Ljósakri 6. Samkvæmt tillögu verður húsið 3 hæða í stað tvegjja hæða og kallar á deiliskipulagsbreytingu. Þeirri deiliskipulagsbreytingu er hafnað þar sem að breytingin hefur áhrif á hús við Hjálmakur en eigendur þeirra hafa áður lýst sig andsnúna þeirri útfærslu.