Tillaga um sérstaka eftirfylgni með hagsmunum barna og ungmenna í áhættuhópum.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (867). fundur
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hann flytur ásamt bæjarfulltrúunum Hörpu Þorsteinsdóttur, Söru Dögg Svanhildardóttur og Sigríði Huldu Jónsdóttur.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að settur verði á fót tímabundinn starfshópur embættismanna, þvert á svið bæjarins, sem tryggi eftirfylgni með stöðu barna við breyttar þjóðfélagsaðstæður. Markmið hópsins er að fylgja eftir málefnum barna sem talist geta í áhættuhópum eða viðkvæmri stöðu og tryggja að starf bæjarfélagsins gagnvart hagsmunum þeirra sé markvisst og samstillt. Þessi vinna tengist áherslum Garðabæjar sem heilsueflandi samfélags og innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Garðabæ.
Sviðsstjórum fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs verði falið að leiða starf hópsins. Skóla- og félagsmálayfirvöld vinni þannig saman að því að skilgreina og bregðast við stöðu barna sem hugsanlega búa við erfiðar aðstæður í samvinnu við skólastjórnendur, stjórnendur vinnuskóla og frístundastarfs og frjáls félög sem starfa með börnum. Áhersla verði lögð að meta þarfir barna og ungmenna sem standa höllum fæti í kjölfar COVID-19 þar sem áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og stuðning ásamt því að tryggja eftirfylgni inn í komandi skólaár haustið 2020. Bæjarráði, skólanefnd grunnskóla og fjölskylduráði verði gerð reglulega grein fyrir stöðu mála og vinnu hópsins.“
Greinargerð:
Garðabær nýtir margs konar úrræði til að mæta stöðu barna og ungmenna sem eru í viðkvæmri stöðu og fjölskyldna þeirra. Má þar nefna m.a. ýmiskonar afslætti og fjárhagsaðstoð. Afleiðingar COVID-19 faraldursins á stöðu barna og fjölskyldna geta verið alvarlegar og á það sérstaklega við um börn sem tilheyra áhættuhópi eða eru í viðkvæmri stöðu. Garðabær hefur þegar brugðist við ástandinu með aðgerðum sem samþykktar voru í bæjarráði 31. mars. Tillögu þessari er ætlað að styðja enn frekar við þær aðgerðir með því að tryggja að allir þeir starfsmenn bæjarins sem hafa snertifleti við börn í viðkvæmri stöðu vinni á samræmdan hátt og í samvinnu að því að bæta stöðu þeirra og líðan. Þannig sé lögð áhersla á sveigjanleika, stuðning, faglega- og einstaklingsmiðaða nálgun með það að markmiði að barnið njóti öryggis og ásættanlegra lífsgæða.
Annað markmið tillögunnar er að tryggja góða yfirsýn á stöðuna þannig að hægt sé að bregðast við með viðeigandi lausnum á skjótan og öruggan hátt ef þörf þykir. Með því verði lagður góður grunnur fyrir komandi skólaár þar sem búast má við að skólahald verði með óhefðbundnu sniði og huga þarf að nemendum sem glíma við félags- eða námserfiðleika.
Verkefnið verði unnið í samvinnu við frjáls félög í bæjarfélaginu sem vinna með börnum og aðilum sem vinna að velferð barna og fjölskyldna þeirra. Sviðsstjórar fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs beri ábyrgð á verkefninu sem fellur m.a. að verkefninu Velferð barna í Garðabæ og áherslum sem lúta að Heilsueflandi samfélagi og innleiðingu heimsmarkmiða.
Tillögunni er ekki síst ætlað að stuðla að meira samstarfi milli fjölskyldusviðs, þ.á.m., barnaverndar annars vegar og Vinnuskólans/frístundastarfs í sumar þar sem börn og ungmenni gætu þurft meiri stuðning en áður. Tryggja þarf meiri yfirsýn yfir hópamyndanir unglinga í samstarfi við fulltrúa félagsmiðstöðva, forvarnarfulltrúa og starfsmanna barnaverndar og skilvirkari söfnun og greiningu á upplýsingum varðandi mætingu, hag og líðan barna og ungmenna á næstu vikum og mánuðum. Þá er mikilvægt að þau svið sem leiða starfshópinn taki á samstilltan hátt á velferð ungmenna við skólabyrjun á komandi hausti 2020.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.