Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 5/5 ´20.

Málsnúmer 2004035F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (867). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020 og 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 16. tl. ? 20 tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi breytingar á ákvæðum skilmála um skjólveggi.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020 og sagði nánar frá undirbúningi umsóknar til Vinnumálastofnunar um fjárveitingu til nýrra skapandi sumarstarfa fyrir ungt fólk.

Almar Guðmundsson, ræddi 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., sumarstörf ungmenna 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Gunnar Einarsson, ræddi, 23. tl., bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020.

Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.