Urriðaholt austurhluti 1 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
8. (867). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 1912214)
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (1926). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Austurhluta 1 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breyttum deiliskipulagsmörkum til aðlögunar að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breyttri afmörkun deiliskipulagssvæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta 1 sem gerir ráð fyrir breytingar á deiliskipulagsmörkum neðan við Maríugötu í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 sem samþykkt hefur verið að auglýsa.
Skipulagsstjóri lítur svo á að þegar að skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 til auglýsingar hafi nefndin um leið samþykkt að vísa tillögu að breytingu deiliskipulagsmarka Austurhluta 1 til auglýsingar.