Beint í efni

Urriðaholt norðurhluti 3 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 1912213

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (867). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 1912213)

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

8. (867). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

17. (1926). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 3 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breyttum deiliskipulagsmörkum til aðlögunar að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Tillaga um breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breyttri afmörkun deiliskipulagssvæðis til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar athugasemdir bárust. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breytingar á deiliskipulagsmörkum við Urriðaholtsstræti í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 sem samþykkt hefur verið að auglýsa. Mörk deiliskipulags fylgja mörkum lóða við sunnanvert Urriðaholtsstræti eftir breytingu en er handan strætisins í gildandi deiliskipulagi.
Skipulagsstjóri lítur svo á að þegar að skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4 til auglýsingar á fundi 12.desember sl hafi nefndin um leið samþykkt að vísa tillögu að breytingu deiliskipulagsmarka Norðurhluta 3 til auglýsingar.