Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna stækkunar byggingarreits á lóðinni við Austurhraun 5.

Málsnúmer 2003355

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1936). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

7. fundur

Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Engar athugassemdir. Tillagan skoðast samþykkt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits aftarlega á lóðinni.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Austurhraun 3 og 7 og Miðhrauns 11 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits að Austurhrauni 5.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.