5. fundur
5. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
14.05.2020
Kl. 10:30 - 11:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2003439
01
Suðurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem sótt er um að gera breytingar á byggingum og lóðarskipulagi að Suðurhrauni 3. Skipulag lóðar víkur að því leyti frá deiliskipulagi Molduhrauns að gert er ráð fyrir 3 innkeyrslum frá Suðurhrauni í stað tveggja og staðsetning þeirra breytist lítillega. Innkeyrslan sem bætist við er m.a. hugsuð sem aðkoma slökkvibíla.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr hvað staðsetningu innkeyrslna varðar. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2003477
02
Hagaflöt 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem skipulagsnefnd vísaði til grenndarkynningar. Allir þeir aðilar sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni á uppdrætti staðfest að þeir gera ekki athugasemd við tillöguna. Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga er grenndarkynningu þar með lokið og deiliskipulagsbreytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2003355
03
Austurhraun 5 - Stækkun byggingarreits
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits aftarlega á lóðinni.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Austurhraun 3 og 7 og Miðhrauns 11 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2005200
04
Langafit 14 Auka bílastæði inn á lóð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að bílastæðum á lóð sé fjölgað úr tveimur stæðum í þrjú. Skipulagsstjóri samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Löngufitar nr. 11, 12, 13, 15 og 16.