Beint í efni

Lokun Garðahraunsvegar - athugasemdir og ábendingar.

Málsnúmer 2007194

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1936). fundur

Lagðar fram fjölmargar athugasemdir og ábendingar vegna lokunar Garðahraunsvegar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda viðkomandi aðilum svarbréf þar sem fram komi að umrædd lokun sé í samræmi við deiliskipulag fyrir íbúðarbyggð í Garðahrauni og eru bæjaryfirvöld skuldbundin gagnvart íbúum svæðisins að láta lokunina koma til framkvæmda. Breyting á deiliskipulagi þar sem lokun var ákveðin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 16. mars 2017 og var hún kynnt á sínum tíma og á ekki að koma óvart.

Með lokuninni er einnig horft til umferðaröryggissjónarmiða en gegnumakstur um Garðahraunsveg, þar sem eru mörg gatnamót að íbúðarhúsagötum, hefur verið hraður og hættulegur.

Bæjarráð samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að skoða nánar möguleika á lagfæringum á gatnamótum Garðahraunsvegar og Álftanesvegar til að bæta umferðaröryggi.