Beint í efni

1. fundur

15.01.2020
Fjölskylduráð Garðabæjar

1. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.01.2020

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1911163

01

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Tekið er fyrir mál nr. 1911163 endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Sunna Stefánsdóttir gerði grein fyrir stöðu og tímalínu í vinnu starfshóps um endurskoðun.

Málsnúmer 1909205

02

Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022

Jafnréttisstofa hefur móttekið og yfirfarið jafnréttisáætlun Garðabæjar, sbr. tölvupóst dags. 09.01.20, og metur það sem svo að áætlunin uppfylli kröfur laga nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla.

Forstöðumaður heimilis fatlaðs fólks í Sigurhæð sendi inn athugasemdir varðandi atriði í jafnréttisáætluninni sem hann vill koma á framfæri við fjölskylduráð Garðabæjar.

Mál nr. 1909205 lagt fram til kynningar og umræðu. Jafnréttisstofa hefur móttekið og yfirfarið jafnréttisáætlun Garðabæjar, sbr. tölvupóst dags. 09.01.20, og er það mat Jafnréttisstofu að áætlunin uppfylli kröfur laga nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla.

Forstöðumaður heimilis fyrir fatlað fólk í Sigurhæð sendi inn athugasemdir varðandi tvö atriði í lið 3 og 3.4 í jafnréttisáætluninni sem hann vill koma á framfæri við fjölskylduráð Garðabæjar.

Fjölskylduráð þakkar forstöðumanni fyrir góðar ábendingar og mun leggja til við bæjarstjórn tillögu að eftirfarandi breytingum á texta:

Fyrsta setning í lið 3 verði eftir breytingu: "Sveitarfélög gegna veigamiklu hlutverki sem veitendur þjónustu, má þar m.a.nefna menntun barna og unglinga, tómstunda- og íþróttastarf, þjónustu við fatlað fólk og aldraðra."

Liður 3.4. verði eftir breytingu:

"3.4. Málefni aldraðra

Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda-og íþróttastarfi fyrir aldraða. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við eldri borgara."

Við bætist svo liður 3.5. sem verði þannig:

"3.5. Málefni fatlaðs fólks

Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda-og íþróttastarfi fyrir fatlað fólk. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við fólk með fötlun."

Málsnúmer 2001081

03

Umsókn um stuðningsþjónustu

Tekið er fyrir mál nr. 2001081 beiðni um undaþágu í tengslum við umsókn um stuðningsþjónustu. Á fundinum undir þessum lið situr framkvæmdastjóri stuðnings- og öldrunarþjónustu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1907114

04

Reglur um akstursþjónustu aldraðra í Garðabæ

Tekið er fyrir mál nr. 1907114 drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra í Garðabæ. Drögin hafa þegar verið lögð fyrir Öldungaráð Garðabæjar sem tók jákvætt í fyrirliggjandi drög og gerði ekki athugasemdir.

Fjölskylduráð fjallar um drögin og samþykkir að senda þau til frekari afgreiðslu bæjarráðs Garðabæjar.

Málsnúmer 1805129

05

Áframhaldandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk

Lagt er fram mál nr. 1805129 áframhaldandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Málið verður sent til umfjöllunar hjá Samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.