2. (1911). fundur
2. (1911). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.01.2020
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Þjónustulýsing vegna útboðs akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Á fund bæjarráðs mætti Björg Fenger, bæjarfulltrúi og kynnti nánar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks og þjónustulýsingu vegna útboðs. Um er að ræða sameiginlegt útboð Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar á akstursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélaganna sem uppfylla það skilyrði að fötlun þeirra falli að skilgreiningu 2.gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, og að þeir eigi ekki rétt á niðurgreiddri akstursþjónustu frá öðrum aðilum eða rétt á akstri samkvæmt öðrum lögum, reglugerðum eða reglum.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks.
02
Dýjagata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Stefáni Pálmasyni, kt. 221181-3609, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Dýjagötu 8.
03
Hraungata 28 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sævari Óla Ólafssyni, kt. 230267-3089, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 28.
04
Hraungata 30 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ragnari Smára Ragnarssyni, kt. 260385-3139, leyfi fyrir byggingu parhúss að Hraungötu 30.
05
Sjónarvegur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059, leyfi til breytinga á parhúsi í byggingu að Sjónarvegi 2.
06
Sjónarvegur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059, leyfi til breytinga á parhúsi í byggingu að Sjónarvegi 4.
07
Sveinskotsvör 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eyrúnu Sigurjónsdóttur, kt. 090568-2999, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Sveinskotsvör 5.
08
Bréf Landskerfa bókasafna varðandi breytingar á gjaldskrá á árinu 2020.
09
Ákvörðun Hæstaréttar varðandi leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu, dags. 09.01.20.
Lögð fram ákvörðun Hæstaréttar Íslands þar sem fram kemur að umsókn Garðabæjar um áfrýjunarleyfi er tekin til greina.
Fylgiskjöl
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
11
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi málefni skíðasvæðanna, dags. 10.01.20.
Í bréfinu koma fram upplýsingar um að Veitur ohf. hafa afturkallað kæru vegna matsskyldu framkvæmda á skíðasvæðunum.
Lagður fram og kynntur viðauki við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
12