Sjónarvegur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (1911). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059, leyfi til breytinga á parhúsi í byggingu að Sjónarvegi 4.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
5. fundur
Fá óútgrafið rými sem tæknirými
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir parhúsið Sjónarvegur 4.
Samkvæmt deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta, 3.áfangi er heimilað hámarksbyggingarmagn fyrir raðhús að gerð R2 220 m2. Þar sem að byggingarleyfisumsókn gerir ráð fyrir því að um 60 m2 á 1.hæð eru niðurgrafin og gluggalaus rými gerir skipulasgstjóri ekki athugasemd að við útgáfu byggingarleyfis sé vikið frá ákvæðum 2.mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem hér er um óverulegt frávik að ræða og grenndaráhrif hverfandi.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (1838). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita H.S.H. byggingameisturum ehf., kt. 681096-2059, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Sjónarvegi 4.