Beint í efni

Útboð framkvæmda á skíðasvæðum. (kynning frá SSH)

Málsnúmer 2001164

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1919). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Aðalsteinn Sigurþórsson frá VSÓ. Páll Björgvin gerði grein fyrir skipuriti með verkefnastýringu framkvæmda á skíðasvæðunum á tímabilinu 2018 - 2025 og fór yfir hlutverk verkefnahóps sem skipaður hefur verið til að hafa með höndum samræmingu, eftirlit og upplýsingagjöf um framvinda skilgreindra nýframkvæmda.
Umræða var um skýrleika skipuritsins og komu fram athugasemdir varðandi gagnsæi o.fl. frá Söru Dögg Svanhildardóttur.
Magnús fór nánar yfir uppbyggingu á skíðasvæðunum til ársins 2025 og gerði grein fyrir útboðsgögnum vegna fyrirhugaðra framkvæmda og kaupum á skíðalyftum og snjóframleiðslubúnaði fyrir skíðasvæðin. Fram kom að stefnt er að því að útboð verði auglýst í mars.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

1. (860). fundur

Gunnar Einarsson, gerði nánari grein fyrir tillögu að viðauka við áður gert samkomulag um endurnýjun mannvirkja á skíðasvæðunum

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti viðauka við samkomulag aðildarsveitarfélaga um endurnýjun á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018.

Bæjarráð Garðabæjar

03

2. (1911). fundur

Í bréfinu koma fram upplýsingar um að Veitur ohf. hafa afturkallað kæru vegna matsskyldu framkvæmda á skíðasvæðunum.

Lagður fram og kynntur viðauki við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl