10. (1919). fundur
10. (1919). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.03.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 2001164
01
Útboð framkvæmda á skíðasvæðum. (kynning frá SSH)
Á fund bæjarráðs mættu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Aðalsteinn Sigurþórsson frá VSÓ. Páll Björgvin gerði grein fyrir skipuriti með verkefnastýringu framkvæmda á skíðasvæðunum á tímabilinu 2018 - 2025 og fór yfir hlutverk verkefnahóps sem skipaður hefur verið til að hafa með höndum samræmingu, eftirlit og upplýsingagjöf um framvinda skilgreindra nýframkvæmda.
Umræða var um skýrleika skipuritsins og komu fram athugasemdir varðandi gagnsæi o.fl. frá Söru Dögg Svanhildardóttur.
Magnús fór nánar yfir uppbyggingu á skíðasvæðunum til ársins 2025 og gerði grein fyrir útboðsgögnum vegna fyrirhugaðra framkvæmda og kaupum á skíðalyftum og snjóframleiðslubúnaði fyrir skíðasvæðin. Fram kom að stefnt er að því að útboð verði auglýst í mars.
Málsnúmer 2001287
02
Ránargrund 1 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Inga Young, kt. 010853-3039, leyfi til að stækka núverandi hús við Ránargrund 1.
Málsnúmer 2001147
03
Þrastanes 10 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jónu Sigríði Einarsdóttur, kt. 310365-3009, leyfi til byggingar einbýlishúss að Þrastanesi 10.
Málsnúmer 1912289
04
Iðnbúð 2 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hagbyggi ehf., kt. 650116-0700, leyfi til að breyta efri hæð úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með átta íbúðum að Iðnbúð 2.
Málsnúmer 2003030
05
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sameiginlega vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu, dags. 18.12.19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um viðhald grunnvatns- og rennslilíkans á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811027
06
Tilboð í lóðir á miðsvæði Álftaness.
Eftirfarandi tilboðs bárust í lóðir á miðsvæði Álftaness.
Breiðumýri (allar lóðir)
Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 1.069.200.000
Reir verk ehf. kr. 985.000.000
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. kr. 651.000.000
FS Glaðheimar ehf. kr. 422.000.000
Fiðluhús ehf. kr. 360.000.000
Sérverk ehf. kr. 355.000.000
Lambamýri
Dverghamrar ehf kr. 378.000.000
Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000
Grásteinsmýri
Dverghamrar ehf kr. 546.000.000
Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000
Hestamýri
Dverghamarar ehf kr. 462.000.000
Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000
F6569 ehf. kr. 270.000.000
FS Glaðheimar ehf. kr. 171.000.000
Bæjarráð vísar málinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 1909059
07
Tillaga Garðabæjarlistans um beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um fyrirkomulag og kostnað við beinar útsendingar á bæjarstjórnarfundum.
Bæjarráð samþykkir hafinn verði undirbúningur að beinum útsendingum frá fundum bæjarstjórnar og að settar verði reglur um hljóð- og myndupptökur.
Ákvörðun um kaup á streymis- og upptökubúnaði er vísað til fjárhagsáætlunar 2021.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003082
08
Tilkynning ÚUA um kæru Dalsnes ehf. varðandi skipulag lóðarinnar Hrauntungu, dags. 04.03.20.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins sem landeiganda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1805051
09
Fundargerðir samráðhóps um viðbyggingu við golfskála GKG.
Lagðar fram fundargerðir 1. og 2. fundar samráðshóps um viðbyggingu við golfskála GKG.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910251
10
Bréf Land lögmanna varðandi framkvæmdir að Reynilundi 11, dags. 28.02.20
Bæjarráð telur ekki að svo stöddu nauðsyn á að grípa til þvingunarúrræða vegna framkvæmda sem hafnar eru við bílskúr að Reynilundi 11 og vísar í því sambandi til þess að samþykkt hefur verið nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi. Það verður því ekki talið að almannahagsmunir krefjist þess að gripið sé nú þegar til sérstakra aðgerða.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari úrvinnslu byggingarfulltrúa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003106
11
Erindi varðandi félagslegt samstarf ungmenna í Búlgaríu og á Íslandi, dags. 03.03.20.
Málsnúmer 2003109
12
Bréf Garðálfa, kór eldri borgara á Álftanesi varðand styrk, dags. 05.03.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2003111
13
Tillaga að breytingum á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum.
Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum.