Bréf Land lögmanna varðandi framkvæmdir að Reynilundi 11, dags. 28.02.20
Málsnúmer 1910251
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (1919). fundur
Bæjarráð telur ekki að svo stöddu nauðsyn á að grípa til þvingunarúrræða vegna framkvæmda sem hafnar eru við bílskúr að Reynilundi 11 og vísar í því sambandi til þess að samþykkt hefur verið nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi. Það verður því ekki talið að almannahagsmunir krefjist þess að gripið sé nú þegar til sérstakra aðgerða.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari úrvinnslu byggingarfulltrúa.