Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um beina útsendingu frá bæjarstjórnarfundi.

Málsnúmer 1909059

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1919). fundur

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um fyrirkomulag og kostnað við beinar útsendingar á bæjarstjórnarfundum.

Bæjarráð samþykkir hafinn verði undirbúningur að beinum útsendingum frá fundum bæjarstjórnar og að settar verði reglur um hljóð- og myndupptökur.

Ákvörðun um kaup á streymis- og upptökubúnaði er vísað til fjárhagsáætlunar 2021.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

4. (863). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarstjórn beinir því til forseta bæjarstjórnar að heimila útsendingar bæjarstjórnarfunda í gegnum facebooksíðu Garðabæjar þar til hægt verður að fjármagna tillögu Garðabæjarlistans sem fór fyrir fjárhagsáætlunargerð í desember síðastliðnum, um uppsetningu upptökubúnaðar til beinna útsendinga.“

Greinargerð
Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi lagt þunga áherslu á gagnsæi í allri upplýsingagjöf og einn liður í þeirri vegferð eru beinar útsendingar frá bæjarstjórnarfundum. Tillaga um slíkt hefur þegar verið lögð fram en var því miður synjað við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í desember síðastliðnum. Með því að opna á heimild til útsendinga með jafn einföldum hætti og að senda fundi út í beinni útsendingu af facebooksíðu Garðabæjar, https://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland/ má auðveldlega mæta mikilvægi gagnsæis og góðri upplýsingagjöf frá pólitískri umræðu þar til svigrúm næst til þess að fjármagna þann búnað sem til þarf. Tillagan er lögð fram í bæjarstjórn, þar sem samkvæmt 16. gr. um stjórn Garðabæjar; Fundarsköp - vald forseta, þarf leyfi forseta bæjarstjórnar til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Valborg Ösp á Warén, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkti að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

12. (852). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn samþykkir að hefja beinar útsendingar frá bæjarstjórnarfundum á heimasíðu Garðabæjar og að upptökur frá fundum verði aðgengilegar eftir að þeim lýkur."

Greinargerð
Með því að senda beint út frá fundum bæjarstjórnar styðjum við enn frekar við það lýðræði og gagnsæi sem mikilvægt er að temja sér og vaxandi kröfur eru um í nútíma samfélagi. Þannig gerum við stjórnsýsluhætti Garðabæjar betri ásamt því að tryggja að stjórnsýslan sé opin og fagleg. Einnig er aðgerð sem þessi líkleg til að auka áhuga íbúa á málefnum sveitarfélagsins.

Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.