4. (863). fundur
4. (863). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.03.2020
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Valborg Ösp Á. Warén
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. febrúar 2020 er lögð fram.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði Lisseth Acevedo Mendez til hamingju með 2. sætið á Íslandsmóti kvenna í skák sem haldið var í Sveinatungu dagana 27. febrúar - 2. mars 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2002031F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 25/2 ´20.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2002042F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 3/3 ´20.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og vakti athygli á bréfi Sorpu bs. sem sent var bæjarfulltrúum í dag, dags. 4. mars 2020 og varðar beiðni um afhendingu gagna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku. Sara Dögg ítrekaði afstöðu sína til málsins sem fram kemur í bókun í fundargerð bæjarráðs. Sara Dögg kvaðst sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., erindi Hrafnistu til Sjúkratrygginga Íslands um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., tilkynningu frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi stöðu kjaramála, 6. tl., tillögu starfshóps um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um val á yfirmarkmiðum og 7. tl., bréf Beit Sahour Municipality um vinabæjartengsl.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og 7. tl. bréf Beit Sahour Municipality varðandi vinabæjartengsl.
Gunnar Einarsson, ræddi, 1. tl., tilkynningu frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi stöðu kjaramála, 7. tl., bréf Beit Sahour Municipality varðandi vinabæjartengsl og 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og 9. tl., erindi Hrafnistu til Sjúkratrygginga Íslands um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2002033F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 26/2 ´20.
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ og 4. tl., stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ og 4. tl., stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði. Sara Dögg ræddi stöðu fátæks fólks á Íslandi.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 4. tl., stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði og 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi velferð barna í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði og 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ. Þá ræddi Ingvar stöðu fátæks fólks á Íslandi.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., tillögu Garðabæjarlistans um úttekt á þjónustu sambýla í Garðabæ og . 4. tl., stöðu biðlista eftir félagslegu húsnæði.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2002025F
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 21/2 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., vetrarhátíð, 3. tl., þriðjudagsklassík, 4. tl., jasshátíð, 7. tl., listadaga barna og ungmenna og 8. tl., sumaropnun á Króki í samstarfi við Garðakirkju.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2002032F
05
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 27/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001026F
06
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 23/1 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001426
07
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 24/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001425
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001272
09
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 28/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1811108
10
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 12/2 ´20.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., friðlýsingu Búrfellsgjár, 4. tl., stjórnunar- og verndaráætlun Reykjanesfólkvangs og 14. tl., vegakerfi í fólkvangnum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., stjórnunar- og verndaráætlun Reykjanesfólkvangs og 14. tl., vegakerfi í fólkvangnum.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 4. tl., stjórnunar- og verndaráætlun Reykjanesfólkvangs.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001161
11
Fundargerð stjórnar SSH frá 7/2 ´20.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu og sagði frá undirbúningi að stofnun félags um verkefni samgöngusáttmála.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001493
12
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 21/2 ´20.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., kynningu á tillögu á breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar á svæði við Vífilsstaði og á Hnoðraholti.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2001494
13
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 26/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2003017
14
Fundargerð 21. eigendafundar Sorpu bs. frá 17/2 ´20.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1909059
15
Tillaga Garðabæjarlistans um beinar útsendingar frá bæjarstjórnarfundum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn beinir því til forseta bæjarstjórnar að heimila útsendingar bæjarstjórnarfunda í gegnum facebooksíðu Garðabæjar þar til hægt verður að fjármagna tillögu Garðabæjarlistans sem fór fyrir fjárhagsáætlunargerð í desember síðastliðnum, um uppsetningu upptökubúnaðar til beinna útsendinga.“
Greinargerð
Garðabæjarlistinn hefur frá upphafi lagt þunga áherslu á gagnsæi í allri upplýsingagjöf og einn liður í þeirri vegferð eru beinar útsendingar frá bæjarstjórnarfundum. Tillaga um slíkt hefur þegar verið lögð fram en var því miður synjað við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í desember síðastliðnum. Með því að opna á heimild til útsendinga með jafn einföldum hætti og að senda fundi út í beinni útsendingu af facebooksíðu Garðabæjar, https://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland/ má auðveldlega mæta mikilvægi gagnsæis og góðri upplýsingagjöf frá pólitískri umræðu þar til svigrúm næst til þess að fjármagna þann búnað sem til þarf. Tillagan er lögð fram í bæjarstjórn, þar sem samkvæmt 16. gr. um stjórn Garðabæjar; Fundarsköp - vald forseta, þarf leyfi forseta bæjarstjórnar til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Valborg Ösp á Warén, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkti að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.