Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 3/3 ´20.

Málsnúmer 2002042F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. (863). fundur

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og vakti athygli á bréfi Sorpu bs. sem sent var bæjarfulltrúum í dag, dags. 4. mars 2020 og varðar beiðni um afhendingu gagna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku. Sara Dögg ítrekaði afstöðu sína til málsins sem fram kemur í bókun í fundargerð bæjarráðs. Sara Dögg kvaðst sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., erindi Hrafnistu til Sjúkratrygginga Íslands um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., tilkynningu frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi stöðu kjaramála, 6. tl., tillögu starfshóps um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um val á yfirmarkmiðum og 7. tl., bréf Beit Sahour Municipality um vinabæjartengsl.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og 7. tl. bréf Beit Sahour Municipality varðandi vinabæjartengsl.

Gunnar Einarsson, ræddi, 1. tl., tilkynningu frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi stöðu kjaramála, 7. tl., bréf Beit Sahour Municipality varðandi vinabæjartengsl og 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku og 9. tl., erindi Hrafnistu til Sjúkratrygginga Íslands um fjölgun dagdvalarrýma á Ísafold.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 5. tl., bréf Sorpu bs. varðandi beiðni um samþykki fyrir tímabundinni lántöku.

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.