Iðnbúð 2 -Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (1919). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hagbyggi ehf., kt. 650116-0700, leyfi til að breyta efri hæð úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með átta íbúðum að Iðnbúð 2.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
1. fundur
Lagðar fram aðalteikingar sem fylgja byggingarleyfisumsókn að Iðnbúð 2. Svalir á efri hæð ná út fyrir byggingarreit og sorpgeymsla er utandyra. Ekki er sérstaklega kveðið á um svalir eða skyggni í deiliskipulagi en kveðið á um að byggingar skulu vera innan byggingarreits. Kveðið er á um að sorpgeymsla sbr.gr.4.5.í skilmálum sé innanhúss og 30 m2 leiksvæði á lóð sbr.grein 5.1.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað sorpgeymslu og svalir varðar. Sýna skal leiksvæði á lóð. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.