43. fundur
43. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í endanum 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.04.2018
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
- Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Margrét Harðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Elísa Ösp Valgeirsdóttir - fulltrúi kennara
- Andrea Róbertsdóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Kristín Sigurðardóttir
Dagskrá
01
Handbækur um velferð og öryggi barna í grunnskólum og leikskólum
Lagt fram til kynningar. Skóladeild falið að koma á framfæri athugasemdum varðandi kafla 5.1.4.
02
Tillaga um að ráðstafa hluta arðgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga til forvarnarmála
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með að arðgreiðslum skuli ráðstafað með þessum hætti og leggur áherslu á að horft sé á snemmtæka íhlutun hvað varðar hegðun, sjálfsmynd og líðan barna.
03
Bréf ráðuneytis v/úttektar Námsmatsstofnunar á Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ
Skólanefnd leggur áherslu á að úrbótum í samræmi við umbótaáætlun verði lokið sem fyrst. Skólanefnd óskar jafnframt eftir upplýsingum um stöðu málsins á fyrsta fundi nefndarinnar í haust.
04
Ytra mat - Flataskóli
Skólanefnd fagnar góðri niðurstöðu og óskar eftir að umbótaáætlun skólans komi fyrir fyrsta fund nefndarinnar í haust.
05
Aðbúnaður og öryggismál
Á grundvelli umræðu um opið aðgengi almennings inn í grunnskólana og mikilvægi öryggis nemenda, þá er skóladeild falið að ræða þetta á næsta fundi með skólastjórnendum.
09
Skólaþing Garðabæjar 2018
Samantekt niðurstaða kynnt, verður birt á heimasíðu bæjarins og í Garðapóstinum og notuð til grundvallar við stefnumótun í skólamálum