Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi staðarvísi fyrir Háholtið í Urriðaholti.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1846). fundur
Bæjarráð samþykkir að staðarvísir Urriðaholts verði hafður að leiðarljósi við uppbyggingu í Urriðaholti og kynntur sem handbók eða leiðbeiningarit fyrir íbúum, eigendum, hönnuðum, verktökum o.fl. sem koma að málum í Urriðaholti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að staðarvísi fyrir háholt Urriðaholts.
Skipulagsnefnd leggur til að bætt verði við leiðbeiningum varðandi útfærslu skjólveggja á lóðum og samræmi þeirra við markmið deiliskipulagins.
Skipulagsnefnd samþykkir staðarvísinn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (1832). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts og gerði grein fyrir hugmyndum og markmiðum með gerð staðarvísis fyrir byggð og umhverfi á háholti Urriðaholts.
Bæjarráð vísar staðarvísi fyrir háholt Urriðaholts til umfjöllunar skipulagsnefndar.