38. (1804). fundur
38. (1804). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.10.2017
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1611104
01
Bréf Landsnets um leyfi til framkvæmda við Lyklafellslínu, dags. 29.12.16.
Á fund bæjarráðs mættu Nils Gústafsson, Þórarinn Bjarnason og Þórður Bogason, fulltrúar Landsnets og fjölluðu um og gerðu nánari grein fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu. Um er að ræða byggingu raflínu frá Lyklafelli í Mosfellsbæ að Hamranesi í Hafnarfirði. Á móti verða fjarlægðar Hamraneslína 1 og 2, sem liggja frá Geithálsi um Heiðmörk að Hamranesi, og Ísallína 1 og 2, frá tengivirki við Hamranes að álverinu.
Fyrir liggja eftirfarandi gögn:
Umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi, dags. 29.12.2016.
Matsskýrsla frá 10.08.2009.
Álit Skipulagsstofnunar, dags. 17.09.2009.
Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits, dags. 09.06.2017.
Skýrsla Eflu - lýsing mannvirkja vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. í des. 2016.
Skýrsla Landsnets frá febrúar 2017 - fyrirhugaðar framkvæmdir við breytingar 2017-2019 á flutningskerfi við höfuðborgarsvæðinu.
Skýrsla Eflu um áhættumat vegna vatnsverndar.
Umsókn um framkvæmdaleyfi er til meðferðar hjá skipulagsnefnd og verður tekin til afgreiðslu á fundi nefndarinnar fimmtudaginn 12. október nk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - Viðauki 9.
Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Garðabæjar a´rið 2017.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Um er að ræða viðauka vegna hækkun launa vegna kjarasamninga, nýbúakennslu og kaupa á námgögnum.
Flataskóli kr. 14.600.000
Garðaskóli kr. 10.900.000
Hofsstaðaskóli kr. 9.700.000
Sjálandsskóli kr. 7.700.000
Álftanesskóli kr. 6.400.000
Tónlistarskóli Garðabæjar kr. 7.400.000
Námsvistargjöld (Alþjóðaskólinn)kr. 9.000.000
Skólaskrifstofa vegna námsgagna kr. 12.500.000
Skólaskrifstofa vegna nýbúa kr. 5.300.000
Samtals kostnaður kr. 83.500.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Urriðaholtsskóli lækkun áætlunarkr. -40.000.000
Jöfnunarsjóður vegna nýbúa kr. -2.800.000
Jöfnunarsjóður vegna fjármálafyrirtækja kr. -26.700.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. -14.000.000
Samtals kr. -83.500.000
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1708274
03
Dyngjugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Júlíusi Gunnar Sveinssyni, kt. 190387-3139 leyfi til að byggja parhús að Dyngjugötu 13.
Málsnúmer 1708275
04
Dyngjugata 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bjarka Gylfasyni, kt. 140888-2309 leyfi til að byggja parhús að Dyngjugötu 15.
Málsnúmer 1709235
05
Tilkynning frá Íbúðalánasjóði um Húsnæðisþing 2017, dags. 04.10.17.
Málsnúmer 1710060
06
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfivegna villibráðakvölds Stjörnunnar í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1710058
07
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi vegna herrakvölds Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1710058
08
Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi vegna kvennakvölds Stjörnunnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1710055
09
Bréf Andra Bachmann Sigurðssonar um styrk vegna jólahátíðar, dags. 04.10.17.
Málsnúmer 1710066
10
Ályktun Félags stjórnenda í leikskólum (FSL) um stöðu leikskólabarna.
Bæjarráð vísar ályktuninni til umfjöllunar leikskólanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710068
11
Bréf Arctic Circle um alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða, dags. 05.10.17.
Lagt fram.
Málsnúmer 1709251
12
Kjörskrá vegn kosninga til Alþingis 28. október 2017.
Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara 28. október 2017. Á kjörskrá eru samtals 11.717 kjósendur. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fjöldi kjósenda 9.705 og í Álftanesskóla 2.012. Kjósendum hefur fjölgað um 327 frá síðustu kosningum til Alþingis 2016. Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, kjörskrá Garðabæjar til að gilda við kosningar til Alþingis sem fram eiga að fara 28. október 2017. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 18. október nk. til kjördags.