Beint í efni

Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 1806154

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

28. (1843). fundur

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (SHJ,SG,AG,JS) samning um ráðningarkjör bæjarstjóra.

Ingvar Arnarson situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (831). fundur

Gunnar Valur Gíslason, lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Gunnar Einarsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2018 - 2022.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar."

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn leggur til að laun bæjarstjóra taki mið af almennum ráðherralaunum að undanskildum forsætisráðherra. Það skiptir máli að um starfskjör bæjarstjóra ríki sátt. Í allri umræðu um laun og kjör í samfélaginu slær skökku við að Garðabær taki sér stöðu gegn almennri launaþróun í landinu með launum bæjarstjóra. Enn fremur sitja bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans hjá við afgreiðslu liðar um ráðningu bæjarstjóra þar sem Garðabæjarlistinn hefði kosið ópólitískt ráðinn bæjarstjóra."

Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá.(SDS,HÞ,VÖW).