Bæjargarður, dsk br
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (836). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs vegna uppsetningar á lýsingu fyrir íþróttavöll samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Ingvar Arnarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1852). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs vegna uppsetningar á lýsingu fyrir íþróttavöll samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Skipulagsnefnd vísaði á síðasta fundi nefndarinnar málinu til tækni- og umhverfissviðs til nánari úrvinnslu. Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Bæjargarðs að lokinni auglýsingu sem fram fór 26. júlí til 6. september, ásamt skýringaruppdrætti, framlögðum athugasemdum og umsögn tækni- og umhverfissviðs.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsögn og samþykkir breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til samþykktar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Bæjargarðs að lokinni auglýsingu sem fram fór 26. júlí til 6. september. Einnig eru lagðar fram innsendar athugasemdir, alls bárust níu athugasemdir.
Skipulagsnefnd vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs til nánari úrvinnslu.
Bæjarráð Garðabæjar
07
28. (1843). fundur
Bæjarráð telur ekki tilefni til framlengingar á fresti til athugasemda samkvæmt auglýsingu um tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bæjargarð þar sem gerð er grein fyrir sex 9,15 metra háum ljósamöstrum við íþróttavöll. Umrædd tillaga að breytingu er í samræmi við það sem áður hefur verið kynnt um lýsingu vallarins og er lögð fram til að taka af allan vafa um gildi framkvæmda við uppsetningu lýsingar.
Athugasemdum málaðila er vísað til skipulagsnefndar í samræmi við efni auglýsingar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs, samkvæmt 1. mgr. 43. gr. sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða til fundar með málsaðila.
Bæjarráð Garðabæjar
08
23. (1838). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, þar sem gert verður ráð fyrir sex ljósamöstrum allt að 9,15 metra háum við nýjan gervigrasvöll í bæjargarði.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs sem gerir ráð fyrir sex 9,15 m háum ljósamöstrum við boltaflöt.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í hús á Fitjum þar sem athygli er vakin á auglýsingunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
8. fundur
Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bæjargarð, dags. 8. maí 2018.
Skipulagsnefnd vísar málinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.