Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um bætt umferðaröryggi við Flataskóla.

Málsnúmer 1810209

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (1853). fundur

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í skýrslu er unnin var af Eflu um umferðaröryggi skólabarna í Garðabæ. Fram kom að unnið er samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar um aðgerðir til úrbóta.

Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að vinna áfram að aðgerðum til úrbóta til að tryggja umferðaröryggi skólabarna.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (836). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu

,,Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn feli tækni- og umhverfissviði að bæta umferðaröryggi við Flataskóla með skýrari merkingum og skiltum þar sem við á. Samhliða þessum úrbótum leggur Garðabæjarlistinn til að farið verði í markvissar aðgerðir til að ýta undir gangandi umferð til og frá skóla með t.d. að tryggja öryggi barna og ungmenna þegar farið er yfir þungar umferðagötur með til dæmis gangbrautarvörslu og styðja þannig um leið við samning um heilsueflandi samfélag í sínum víðasta skilningi."

Greinargerð:
Umferðaröngþveiti við Flataskóla hefur verið umkvörtunarefni foreldra sem og starfsfólks skólans að undanförnu. Vandinn lýsir sér í því að fólk virðir ekki umferðarreglur inni á bílaplaninu né við umferðarljósin.
Bílum er ítrekað lagt við hringtorgið sem og á víð og dreif á bílaplani við skólann til þess að koma börnum í skólann. Mikil hætta skapast vegna þessa á hverjum morgni þar sem umferðaröryggi er ekki tryggt eins og kostur er.
Samhliða þessu mætti fylgja fordæmi við Álftaneskóla og vera með gangbrautarstarfsfólk sem aðstoðar börn sem koma gangandi eða hjólandi til skóla og eykur töluvert öryggi um leið. Eins má benda á að sumir skólar hafa tekið upp á því að vera með starfsmenn á morgnana við skólann til að auka öryggi barna á leið í skólann.

Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, ræddi framlagða tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.