Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um skýra verkferla varðandi styrkveitingar.

Málsnúmer 1810221

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

38. (1853). fundur

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu reglum er gilda um afgreiðslu styrkja hjá menningar- og safnanefnd, íþrótta- og tómstundaráði og bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman tillögu að leiðbeiningum vegna úthlutunar styrkja.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (836). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

,,Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að Garðabær setji fram skýra verkferla varðandi styrkveitingar úr bæjarsjóði, verkferla sem nefndir á vegum Garðabæjar geta fylgt þegar kemur að styrkveitingum sem ekki teljast til lögbundinna hlutverka sveitarfélaga. Einnig er lagt til að allar styrkveitingar séu aðgengilegar í opnu bókhaldi bæjarins."

Greinagerð:
Með því að setja skýra verkferla á styrkveitingum og að útbúa gagnagrunn til að halda utan um allar styrkveitingar sem bæjarfélagið veitir verður auðveldara fyrir bæjarfulltrúa og nefndarmenn að fylgjast með og sjá hvað Garðabær er að styrkja. Einnig er mikilvægt að íbúar Garðabæjar hafi aðgang að þessum upplýsingum. Með aukni gagnsæi kemur einnig aukið aðhald.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi framlagða tillögu.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.

Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og fór almennt yfir meðferð á styrkbeiðnum og veitingu styrkja. Gunnar lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.