Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 9/10 ´18.

Málsnúmer 1810013F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (836). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi ályktun til samþykktar.

,,Bæjarstjórn Garðabæjar gagnrýnir harðlega þær tillögur að samgönguáætlun sem nú eru til umræðu á Alþingi, bæði tillögu um fimm ára samgönguáætlun 2019-2023 og tillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2019-2033.
Það er óásættanlegt að ekki sé gert ráð fyrir meira fjármagni til nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu til að leysa og létta á umferðarþunga á þessu svæði.
Samkvæmt ástandsgreiningu starfshóps SSH og ríkisins frá árinu 2017 fær fjöldi umferðarmannvirkja á höfuðborgarsvæðinu einkunnina F sem þýðir að umferð gangi mjög erfiðlega fyrir sig.
Bæjarstjórn Garðabæjar mótmælir því að í tillögu að samgönguáætlun 2019-2023 sem nú liggur fyrir sé ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni til framkvæmda við gatnamót Hafnarfjarðarvegar ogVífilsstaðavegar né gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss en bæði gatnamótin fá þjónustustig F í ástandsgreiningunni auk þess sem umferðaröryggi þar er verulega ábótavant.
Í tillögu að samgönguáætlun 2019-2033 er stokkur undir Hafnarfjarðarveg í Garðabæ tímasettur á tímabilinu 2029-2033 og þá einungis með helmingi þess framlags sem áætlað er að framkvæmdin kosti.
Bæjarstjórn Garðabæjar mótmælir því að svo brýn framkvæmd sé látin sitja á hakanum og leggur mikla áherslu á að framkvæmdin sé færð framar í samgönguáætlun.
Tveir þriðju hluti landsmanna búa á höfuðborgarsvæðinu og á hverju ári koma rúmlega tvær milljónir ferðamanna til landsins sem flestir fara í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog á leið sinni til og frá landi.
Bæjarstjórn Garðabæjar hvetur ráðherra og þingmenn til þess að forgangsraða fjármagni í samgönguáætlun þar sem hún nýtist flestum og þörfin er brýn. Óbreytt ástand er ólíðandi."

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu og lýsti yfir stuðningi við hana. Þá ræddi Sara Dögg, 5. tl., bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum foreldrum.

Ingvar Arnarson, ræddi 9. tl. bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða og 17. tl., heimsóknir i stofnanir. Þá ræddi Ingvar 5. tl., og minnti á tillögu sína um skráningu lögheimilis.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 16. tl. starfsáætlanir sviða.

Gunnar Einarsson, ræddi framlagða ályktun og fjallaði um viljayfirlýsingu varðandi samstarf SSH og ríkisins um úrbætur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Gunnar ræddi 9. tl., bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða og 16. tl., starfsáætlanir sviða.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl. bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum foreldrum og 16. tl., starfsáætlanir sviða.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 16. tl., starfsáætlanir sviða.

Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 16. tl., starfsáætlanir sviða.

Ályktun varðandi forgangsröðun til brýnna framkvæmda í samgönguáætlun samþykkt samhljóða.

Fundargerðin, sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.