Útboð heilsuræktaraðstöðu í Ásgarði
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (836). fundur
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir niðurstöðu dómnefndar að meta tilboð Sporthallarinnar ógilt og mæla með að leitað verði samninga við Laugar um uppbyggingu aðstöðu fyrir heilsurækt við íþróttamiðstöðina Ásgarð. Almar vísaði til minnisblaðs Andra Árnasonar, lögmanns þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að tilboð Sporthallarinnar feli í sér breytingu frá fyrra stigi í tilboðsferli sem sé veruleg og raski stöðu bjóðenda sem geti ekki annað en leitt til þess að tilboðið teljist í raun ógilt.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Gunnar Einarson, tók til máls og þakkaði dómnefndinni fyrir vönduð og fagleg vinnubrögð við afgreiðslu málsins.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og tók undir orð um vönduð og fagleg vinnubrögð dómnefndar við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu dómnefndar um að leitað verði samninga við Laugar og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við félagið um uppbyggingu á aðstöðu fyrir heilsurækt við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1852). fundur
Lögð fram niðurstaða dómnefndar um tilboð Sporthallarinnar ehf. og Lauga ehf. Í niðurstöðu dómnefndar kemur fram að tilboð Sporthallarinnar ehf. er metið ógilt.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að leitað verði samninga við Laugar ehf. um uppbyggingu á aðstöðu fyrir heilsurækt við íþróttamiðstöðina Ásgarð.