Víkurgata 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1996). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Elíasi Sæmundssyni, kt. 100272-4829, leyfi til að stækka bílgeymslu og rými á neðri hæð einbýlishússins við Víkurgötu 4.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32 (1990). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 4. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Innsendar athugasemdir lagðar fram.
Gerðar eru athugasemdir við að framkvæmdir séu hafnar við þann hluta mannvirkis sem grenndarkynning lýtur að og að þær séu ekki að fullu í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Við skoðun kemur í ljós að verið er að framkvæma í samræmi við grenndarkynnt gögn. Framkvæmdaaðili hefur beðist velvirðingar á því að hafa farið fram úr sér.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram tillaga deiliskipulagsbreytingu sem hafði verið vísað í grenndarkynningu á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 21.06.2021. Einnig lagðar fram innsendar athugasemdir. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
7. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að hluti af kjallara fari út fyrir byggingarreit að ofanverðu. Umrædd rými verða alfarið niðurgrafin og án glugga. Breyting nær að hluta til að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Tryggja skal að jarðvegsvatn eigi greiða leið um lóðina eins og deiliskipulag kveður á um. Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 2, 6, 11 og 13 sem og Bæjargötu 2 og 4 Keldugötu 1.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.