7. fundur
7. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.06.2021
Kl. 14:00 - 14:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2105485
01
Lambhagi 20 Sólskáli- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu sólskýlis við norðausturenda einbýlishússins að Lambhaga 20.
Þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi í Lambhaga er umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Lambhaga nr. 5,6,7, 18 og 19.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2012302
02
Sveinskotsvör 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Vara að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og 44.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2011174
03
Deiliskipulag Ásgarðs, skóla og íþróttasvæði. Breyting. Stígur.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir byggingarreit við skiptistöð Strætó sem gerir ráð fyrir starfsmannaaðstöðu, strætóskýli, hjólskýli og viðgerðaraðstöðu.
Umsagnir Strætó og eiganda Bitabæjar um tillöguna liggur fyrir.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskiplags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóri fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr.44.gr. sömu laga þar sem að jákvæðar umsagnir liggja fyrir.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106027
04
Smáraflöt 2 - skúr - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu við bílageymslu.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkjarflatar 5, 7, Smáraflatar 1, 3, 4 og Garðaflatar 3, 5.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2105318
05
Langamýri 19 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um það hvort heimilað verði að reisa sólskýli við suðurhlið íbúðarhússins 5x9 m.
Þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi í Löngumýrier umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Löngumýrar nr.7,9,17,21,27 og 29.
Málsnúmer 2104467
06
Kjarrmóar 50 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa bílageymslu við austugafl hússins.
Svar: Skipulagsstjóri telur að stækkun byggingarreits fyrir bílageymslu komi vel til greina og vísar tillögunni til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Móa sem nú er í vinnslu.
Undirritað samþykki allra eigenda raðhúslengjunnar þarf að liggja fyrir svo hægt sé að vinna áfram með tillöguna.
Málsnúmer 2106123
07
Hrísmóar 1- Bæta inn leiguíbuð - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði fjölga íbúðum fjölbýlishússins um eina með því að breyta geymslurýmum í litla íbúð á jarðhæð.
Svar: Skipulagsstjóri telur að vel komi til greina að fjölga íbúðum um eina á meðan að kröfur byggingarreglugerðar eru uppfylltar. Fjölgun íbúða þurfa að eiga sér stoð í deiliskipulagi og er fyrirspurn því vísað til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Móa sem nú er í vinnslu.
Áður en íbúð verður samþykkt af byggingarfulltrúa þarf að liggja fyrir eignaskiptasamningur sem undirritaður er af öllumm eigendum fjölbýlishússins.
Málsnúmer 2103298
08
Brekkubyggð 35 neðri hæð - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn sbr. 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2105624
09
Andvaravellir 3 - kvistur á ris -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að gera kvisti á hesthúsið að Andavaravöllum nr.3. líkt og gert var að Fluguvöllum 4.
Skipulagsstjóri metur tillögu um breytingu deiliskipulags sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Andvaravalla 2 og 4 og Dreyravöllum 1,2 og 3.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106266
10
Hraungata 14 steypt verönd - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 2105304
11
Hraungata 21 - Sópallur og skjólveggir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð og útlit skjólveggja að Hraungötu 21. Umsögn deiliskipulagshöfundar Arkís lögð fram. Í umsögn kemur fram að tillagan er í samræmi við deiliskipulag og tekur skipulagsstjóri undir þá niðurstöðu. Bent skal á að samkvæmt deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta skulu skjólveggir koma fram á aðaluppdráttum. Því þarf að leggja fram uppdrætti hjá byggingarfulltrúa.
Málsnúmer 2106252
12
Víkurgata 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að hluti af kjallara fari út fyrir byggingarreit að ofanverðu. Umrædd rými verða alfarið niðurgrafin og án glugga. Breyting nær að hluta til að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Tryggja skal að jarðvegsvatn eigi greiða leið um lóðina eins og deiliskipulag kveður á um. Grenndarkynna skal eigendum Víkurgötu 2, 6, 11 og 13 sem og Bæjargötu 2 og 4 Keldugötu 1.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2010304
13
Framkvæmdir -bráðabirgða reiðstígur í Urriðakotshrauni.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags golvallar í Urriðavatnsdölum sem samþykkt var árið 1992.
Breytingin gerir ráð fyrir því að gert verður ráð fyrir 4 metra breiðum stíg frá línuvegi við vesturjaðar Urriðakotshrauns.
Lega hans verður að vegslóða að háspennumastri og frá þeim stað yfir óraskað hraun, c.a. 55 65 metra og þaðan ca 200 m um lúpínugróinn mel að núverandi línuveg. Sá hluti stígsins sem er í hrauninu skal lagður þannig að auðvelt verður að fjarlægja hann og afmá vegsummerki.
Ef stígnum verður fundinn annar staður í breytingum skipulags sem unnið er að skal stígurinn fjarlægður.
Samkomulag er á milli Garðabæjar og landeiganda um að línuvegurinn frá Heiðmerkurvegi um Urriðakotshraun, Sandahlíð og Setbergshlíð að bæjarmörkum við Hafnarfjörð verði nýttur sem reiðstígur til bráðabirgða þar sem núverandi reiðvegur meðfram Flóttamannaleið er ófær vegna framkvæmda við uppbyggingu Urriðaholts.
Að mati skipulagsstjóra telst breytingin óveruleg breyting á deiliskipulagi Golfvallar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en landeiganda og sveitarfélags er grenndarkynning felld niður sbr.2.ml.3.mgr.44.gr. sömu laga. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2104191
14
Hönnun - Útboð - Leikskóli Mánahvoll
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðaleikskóla á lóðinni Spítalavegur 2a við hlið leikskólans Sunnhvols sem nefnist Mánahvoll.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir landnotkun undir samfélagsþjónustu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en byggingin telst í samræmi við ríkjandi byggðamynstur og landnotkun á svæðinu.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga og grenndarkynna skal umráðendum lóða við Spítalaveg.