Brekkubyggð 35 neðri hæð - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
7. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn sbr. 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
4. fundur
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits fyrir sólskála við austurhlið neðri hæðar Brekkubyggðar 35.
Deiliskipulag Brekkubyggðar að neðanverðu telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt árið 1977 þ.e. áður en fyrsta aðalskipulag sveitarfélagsins tók gildi.
Með vísan í sambærilegar breytingar í öðrum húsum við Brekkubyggð að neðanverðu vísar skipulagsstjóri tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem byggingarleyfisumsókn á svæði án deiliskipulags. Samþykki annarra lóðarhafa liggur fyrir, þ.e. Brekkubyggðar 23, 25, 27,29,31,33,35 (efri hæðar) 37 og 39.
Grenndarkynna skal eigendum Brekkubyggðar 17,19,21, og 41.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.