Beint í efni

Hrísmóar 1- Bæta inn leiguíbuð - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2106123

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

7. fundur

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði fjölga íbúðum fjölbýlishússins um eina með því að breyta geymslurýmum í litla íbúð á jarðhæð.
Svar: Skipulagsstjóri telur að vel komi til greina að fjölga íbúðum um eina á meðan að kröfur byggingarreglugerðar eru uppfylltar. Fjölgun íbúða þurfa að eiga sér stoð í deiliskipulagi og er fyrirspurn því vísað til úrvinnslu við mótun deiliskipulags fyrir Móa sem nú er í vinnslu.
Áður en íbúð verður samþykkt af byggingarfulltrúa þarf að liggja fyrir eignaskiptasamningur sem undirritaður er af öllumm eigendum fjölbýlishússins.