Hönnun - Útboð - Leikskóli Mánahvoll
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
7. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðaleikskóla á lóðinni Spítalavegur 2a við hlið leikskólans Sunnhvols sem nefnist Mánahvoll.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir landnotkun undir samfélagsþjónustu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en byggingin telst í samræmi við ríkjandi byggðamynstur og landnotkun á svæðinu.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga og grenndarkynna skal umráðendum lóða við Spítalaveg.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Kynnt frumdrög að bráðabirgðaleikskólanum Mánahvoli sem stefnt er að því að rísi austan við leikskólan Sunnuhvol við Spítalaveg hjá Vífilsstöðum. Til að mæta brýnni þörf fyrir leikskólarými í Garðabæ hefur verið ákvæðið að ráðast í uppbyggingu leikskólans.
Skipulagsefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar þegar að afmörkun lóðar liggur fyrir í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
14. (1972). fundur
Bæjarstjóri fór yfir stöðu innritunar barna í leikskóla og kom fram að gert er ráð fyrir að öll börn fædd árið 2020 fái dvöl á leikskóla á árinu 2021.
Bæjarverkfræðingur gerð grein fyrir undirbúningi að þarfagreiningu vegna kaupa á lausum kennslustofum sem staðsettar verða við Leikskólann Sunnuhvol. Hugmyndir eru um að byrja með fjórar deildir með möguleika á stækkun í sex deildir. Þá hafa einnig verið kannaðir möguleikar á að finna annað húsnæði með það huga að nýta þar aðstöðu til bráðabirgða þar til nýr leikskóli tekur til starfa í Urriðaholti.
Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn fagnar því að það eigi að bregðast við skorti á leikskólaplássum. Þegar okkur var ljóst að það yrði skortur á leikskólaplássum lögðum við til í haust 2020 að gerð yrði áætlun um uppbyggingu leikskóla. Við viljum gjarnan að samhliða þessu að byrjað verði að hanna og byggja leikskóla í þeim hverfum sem eru á leið í uppbyggingu t.d. í Hnoðraholti.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var sl. fimmtudag hélt oddviti Garðabæjarlistans, Sara Dögg Svanhildardóttir, því fram að það vanti 300 rými fyrir leikskólabörn í Garðabæ á þessu ári og að staðan væri alvarleg. Hér leyfir bæjarfulltrúi sér að fara með rangfærslur úr ræðustól á fundi bæjarstjórnar sem streymt er beint á vef Garðabæjar. Við innritun leikskólabarna sem fædd eru árið 2020 kom í ljós að árgangurinn var mun fjölmennari en fyrri árgangar. Í desember á síðasta ári var því strax hafin vinna til að fjölga leikskólaplássum í sveitarfélaginu m.a. með því að kanna möguleika á nýtingu á húsnæði til bráðabirgða og með því að taka í notkun lausar kennslustofur. Þess má einnig geta að hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti var sett af stað á síðasta ári.
Málflutningur bæjarfulltrúans um innritunarvanda eða ,,alvarlega stöðu" er því ekki bara ómálefnalegur heldur einfaldlega rangur og fellur ekki undir góða og vandaða starfshætti. Fjölgun leikskólabarna í Garðabæ er jákvæð þróun og verkefni sem verið er að leysa og ekkert sem bendir til annars en að börn fædd árið 2020 komist inn í leikskóla í Garðabæ á þessu ári.“